
Sérvalin innihaldsefni augnkremsins vinna á fínum línum og hrukkum í kringum augun, vinna einnig á þrota og bólgum ásamt marblettum eða öðrum litablettum sem myndast undir eða í kringum augunum. Húðin verður stinnari, mýkri, þéttari og áferðafallegri. Kremið er rakagefandi, dregur úr þrota og þreytu, endurnærir húðina og gefur henni fallegan ljóma og áferð.
Við mælum með KOLLAGENI á húðina og rakakremi sem innheldur KOLLAGEN.
Notkun: Berið augnkremið á hreina húðina og og nuddið kreminu létt undir augun og á augnlokin.
Vegna þess hversu rakagefandi og virk innihaldsefni augnkremsins eru, þá má einnig nota það sem raka á andlitið sjálft. Gott er að nota náttúrulega Platinum Collagen gelið samhliða augnkreminu.