HVAÐ ER KOLLAGEN?

Kollagen (collagen) er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum,  sinum og beinum mannslíkamans. Einnig er kollagen mjög stór hluti af húð, hári og nöglum. Orðið kollagen er komið úr grísku og þýðir lím. Því er oft talað um kollagenið sem límið í líkamanum. Í stuttu máli má segja að kollagen prótein sjái til þess að vefir líkamans haldist sterkir.

Ef líkaminn er heilbrigður þá framleiðir hann sjálfur kollagen en um 25 ára aldur fer að hægjast verulega á framleiðslunni eða að meðaltali um 1,5% á hverju ári. Fólk áttar sig oft ekki á því hversu snemma hægist á kollagenframleiðslu líkamans.  Því þarf fólk oft að grípa til annarra ráða svo sem að bera hreint kollagen á húðina, í hárið og á neglurnar eins og Collagen Platinum, Silver eða Graphite eða taka kollagen inn í bætiefnaformi eins og Colvita frá Colway.

Þegar kollagen framleiðslan minnkar og aldurinn færist yfir byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunareinkennum.  Við verðum aðeins stirðari og förum að finna fyrir verkjum í liðum og liðamótum. 

Þar sem kollagen er einnig mjög stór hluti af uppbyggingu húðarinnar byrja að myndast fínar línur og hrukkur og teygjanleiki húðarinn fer að minnka.  Húðin er gerð úr þremur lögum og það er miðlagið (dermis) sem sér um teygjanleika hennar. Þessi teygjanleiki er tilkominn vegna prótínþráða sem heita „elastín en það ásamt seigu kollageni, sem er annað prótín í þessu húðlagi, eiga mestan þátt í að viðhalda unglegri og frísklegri húð og koma í veg fyrir hrukkumyndun.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að með reglulegri notkun á kollagen próteini er hægt að hjálpa líkamanum að vinna á móti minnkandi framleiðslu efnisins og draga þar með úr hrukkumyndum sem og verkjum og stirðleika í liðum.

 

Af hverju er Colway kollagen öðruvísi?

Colway kollagenið er vatnsbundið (hydrate) en ekki vatnsrofið (hyrolysate).  Kollagenið er tekið úr hágæða fiskroði sem þrívíður spírall.  Þetta forstig kollagens er síðan varðveitt, ekki unnið.  Þannig viðhalda mólekúlin uppbyggingu sinni sem tryggir virkni þeirra í snyrti- og heilsuvörum.

Þetta spírallaga vatnsbundna kollagen brotnar auðveldlega niður í peptíð þegar það snertir húðina. Ólíkt vatnsrofina kollageninu, kemst vatnsbundna peptíðið auðveldlega í þrjú lög húðarinnar til að mynda net af prótein "vinnupöllum" sem endurnýja, styrkja og styðja húð, hár, neglur og liði.

Þess vegna er mikilvægt að skoða innihaldsefni snyrtivara og bætiefna og skoða hvort kollagenið sem er notað sé vatnsrofið.   Þess konar kollagen er unnið úr vefjum og brjóski úr kúm og svínum.  Það verður vatnsrofið eftir mikla efnavinnslu. Þrátt fyrir það líkist það ennþá kollageni samsetningu en ekki í uppbyggingu. Þetta "dauða" prótein getur ekki að fullu komist inn í ytri lag húðarinnar til þess að vinna með undirliggjandi húðlögum.  Þess vegna eru rakagefandi áhrif tímabundin.

Þess vegna skiptir máli að vita hvernig KOLLAGENIÐ sem er í húðvörunum er unnið.  

Allt KOLLAGENIÐ í húðvörulínunni frá COLWAY er hágæða vatnsbundið kollagen sem gerir húðina stinnari, vinnur gegn náttúrulegri öldrun hennar, fínum línum og hrukkum.  Húðin verður silkimjúk og falleg.

  ------------------------------------------------------------------------- 

Vitta ehf. er umboðsaðili Colway hér á Íslandi.

Þú getur alltaf haft samband með því að senda okkur póst á sigrun@vitta.is

Upplýsingar um söluaðila:

Heilsan heim
Vitta ehf., (490184-1559)
Lambasel 12,
109 Reykjavík
Sími: 6181900 (Sigrún)
sigrun@vitta is