Heilsan heim

SLÖKUN OG HUGARRÓ - JÓGA NIDRA NÁMSKEIÐ. Hefst 18. apríl 2024. 4 vikur.

9.000 kr
Ertu að glíma við of mikið álag, þreytu, streitu eða jafnvel kulnun? Á þessu námskeiði endurhlöðum við líkamann og hugann með Yoga Nidra sem er nútímavædd og öflug slökunar- og hugleiðslutækni sem á sér stað í undirmeðvitundinni. Í upphafi tímans tökum við nokkrar léttar teygjur og förum svo fljótlega inn í endurnærandi og djúpa slökun. Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og einstaklega góð aðferð til að losa spennu, þreytu og streitu. Iðkandinn er leiddur inn í djúpa slökun, inn í þögnina, friðinn og kyrrðina handan hugans og sleppir algjörlega tökunum á allri spennu, þreytu og streitu. Daglegt amstur er sett til hliðar og tími og rúm gefið til þess að endurnærast. Þessi slökunartækni hefur gífurlega góð og róandi áhrif á taugakerfið, bætir andlega líðan, endurnærir líkamann, dregur úr streitu, losar stíflur svo orkan fái að flæða óhindrað um líkamann og þannig fær líkaminn tækifæri til að ná betra jafnvægi, losa um spennu og streitu, heila sig og hefja viðgerðarferli. Það að gefa "litlu viðgerðarsveitinni" tíma og tækifæri til að gera við í líkamanum er mjög mikilvægt en það gerist einna helst þegar við hvílumst og sofum. Ein klukkustund í Yoga Nidra jafnast á við 4 tíma hefðbundinn svefn.

Kennari:  Sigrún Kjartansdóttir, jóga- og bandvefslosunarkennari

Næsta námskeið hefst 18. apríl 2024 og eru 4 vikur.
Kennt á fimmtudögum kl. 16:15-17:15 í World Class í Breiðholti í sal 3. 

Skráning:  www.worldclass.is/nynamskeid

aðrir keyptu líka þessar vörur

Aðrir skoðuðu þessar vörur líka